top of page

Endurnýjun Laugavegs

Laugavegurinn fær nýtt, bjart og stílhreint yfirbragð.

Landhönnun var hluti hönnunarteymis Arkís arkitekta sem var hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um endurnýjun Laugavegs í Reykjavík.

Tillagan gerir ráð fyrir að göturými Laugavegarins verði einfaldað með skýru efnisvali og útfærslum þannig að rýmið verði heilsteypt og myndi afslappað umhverfi fyrir fjölbreytt mannlíf. Með einföldu og stílhreinu efnisvali og hnitmiðaðri götulýsingu fá húsin við götuna einnig að njóta sín.

Teymi: Arkís arkitektar, Landhönnun, Verkís og Harpa Cilia ferlihönnuður.


bottom of page