Skipulag miðbæjar Hveragerðis
Um er að ræða skipulagstillögu í opinni hönnunarsamkeppni um miðbæjarsvæði Hveragerðis. Þáttaka í keppninni var mjög góð en alls voru 17 tillögur teknar til mats og umfjöllunar. Landhönnun vann að tillögu með arkitektastofunni Arkís og hafnaði hún í öðru sæti keppninnar.
Skoða betur...
2008 - Leikskóli Úlfarsárdal
Tillaga Arkþings og Landhönnunar var valin til endanlegrar útfærslu og framkvæmdar úr hópi fimm samanburðartillagna fyrir leikskóla í Úlfarsárdal í Reykjavík.
Skoða betur...
2007 – Grunnskóli á Stokkseyri
Landhönnun tók þátt í alútboði vegna nýs grunnskóla á Stokkseyri. Verkið var unnið fyrir JÁ-verktaka sem voru meðal bjóðenda í verkefnið. Arkitektar tillögunar voru Á stofunni arkitektar.
Skoða betur...
2007 - Kirkja í Grafarholti
Tillaga Arkþings og Landhönnunar, í samstarfi við verktakafyrirtækið SS-verktaka, lenti í 1. sæti í hönnunarsamkeppni um nýja kirkjubygging í Grafarholti. Um var að ræða samkeppni þar sem framkvæmdakostnaður skildi vera innan ákveðinna marka og besta tillagan innan þess ramma valin. Aðrir samstarfsaðilar í verkinu eru Almenna Verkfræðistofan, Raftákn og Trivium ráðgjöf.
Skoða betur...
2006 – Sundlaug við Ásvelli í Hafnarfirði
Tillagan var unnin fyrir JÁ verktaka sem voru bjóðendur í verkið. Arkitektar tillögunarinnar voru ASK.
Skoða betur...
2006 -Leikskóli við Norðurhóla á Selfossi
Tillaga Tindaborga að nýjum leiksóla þar sem Landhönnun hannaði lóð var valin hagstæðust m.t.t. hönnunar og byggingakostnaðar í alútboði sem sveitarfélagið Árborg stóð fyrir. Arkitektar eru Á stofunni en verkfræðiþátturinn er í höndum VST á Selfossi.
Skoða betur...
2005 – Leikskóli við Erlurima á Selfossi

Tillagan var unnin fyrir Smíðanda en hönnuður húss var TGS á Selfossi. Um var að ræða alútboð og hafnaði tillagan í 2. sæti. 


Skoða betur...
2004 - Nýr grunnskóli í Grafarholti
Tillaga Arkís og Landhönnunar um nýjan grunnskóla við Bakkastaði í Staðahverfi, Grafarholti var valin best m.t.t. hönnunar og byggingakostnaðar í alútboði sem Reykjavíkurborg stóð fyrir. Verktaki er Ístak. Skólinn mun koma í stað eða flytjast úr núverandi Korpuskóla.
Skoða betur...
2003 - Nýr 8 deilda leikskóli í Hafnarfirði
Tillaga Ask arkitekta og Landhönnunar um nýjan leikskóla við Stekkjarás í Hafnarfirði var valin best m.t.t. hönnunar og byggingakostnaðar í alútboði sem Hafnarfjarðarbær stóð fyrir. Verktaki er Hagtak ehf og aðrir meðhönnuðir eru verkfræðistofurnar Tera og Hönnun. Verkefnið er fyrsta samkeppnisverkefni Landhönnunar sem valið er til framkvæmda. Að því er best er vitað verður um að ræða stærsta leikskóla landsins!
Skoða betur...
2003 - Grafreitur fyrir duftker
Landhönnun tók þátt í opinni hönnunarsamkeppni um kirkjugarð fyrir duftker í Leynimýri við Öskjuhlíð í Reykjavík. Samkeppnir um skipulag garða og útivistarsvæði eru afar sjaldgæfar og því var hér um að ræða athyglisverða keppni sem margir tóku þátt í og margar góðar tillögur lagðar fram.