
Guðríðarkirkja í GrafarholtiUm er að ræða tillögu Arkþings og Landhönnunar, í samstarfi við verktakafyrirtækið SS-verktaka, sem lenti í 1. sæti í hönnunarsamkeppni um nýja kirkjubygging í Grafarholti. Um var að ræða samkeppni þar sem framkvæmdakostnaður skildi vera innan ákveðinna marka og besta tillagan innan þess ramma valin. Aðrir samstarfsaðilar í verkinu voru Almenna Verkfræðistofan, Raftákn og Trivium ráðgjöf. Kirkjan var vígð sunnudaginn 7. des. 2008 af biskupi íslands. Skoða betur... |
Landbúnaðarstofnun á SelfossiUm er að ræða metnaðarfulla lóðarfrágang frá hendi verkkaupa sem var Merkiland ehf. Miðsvæði bílastæða er lagt smásteinshellulögn og framan við aðalinngang er virðulegt aðkomutorg með hleðslu úr náttúrugrjóti, lauttré og flaggstöng. Skoða betur... |
Sundmiðstöð HafnarfjarðarUm er að ræða innsenda tillögu í samkeppni um sundmiðstöð í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Tillagan var unnin með ASK arkitektum en hlaut ekki brautargengi. Skoða betur... |
Bugl Dalbraut 12Nýbygging BUGL var tekin í notkun í september 2008. Arkitektar voru Arkís ehf. Mannvirkið er allt hið glæsilegasta og tengist eldra húsi með göngubrú yfir tjörn. Lóðinni er ætlað að vera vettvangur samveru og afþreyingar í aðlaðandi umhverfi með gróðri, tjörn og mismunandi dvalarsvæðum. Skoða betur... |
Íþróttamiðstöð ÞorlákshafnarNý íþróttamiðstöð ölfusinga í Þorlákshöfn var tekin í notkun við upphaf landsmóts UMFÍ um verslunarmannahelgina í sumar. Um er að ræða glæsileg íþróttamannvirki með nýrri sundlaugarbyggingu ásamt fullkomnum frjálsíþrótta- og fótboltaleikvangi. Allt umhverfi, aðkomusvæði og sundlugarlóðin voru endurbyggð og er allt hið glæsilegasta. Skoða betur... |
Bláargerði 9-11-sambýliSkoða betur... |