Heiðarskóli


Landhönnun í samvinnu við Stúdio Strik og VSB urðu hlutskörpust í sérstöku forvali eða útboði vegna hönnunar nýs grunnskóli í Hvalfjarðarsveit. Óskað var eftir áhugasömum hönnunarteymum sem áttu að leggja fram tillögu að hugmyndafræðilegri nálgun verkefnisins.

Í drögum að skólastefnu Hvalfjarðarsveitar er að finna eftirtalin áhersluatriði sem geta verið vegvísar og áhersluatriði við hugmyndavinnu og útfærslu skólalóðar og umhverfis:

-          að fjölbreittum aðferðum sé beitt við uppeldi og kennslu

-          að jafnvægi skuli vera milli bóklegra og verklegra þátta, listgreina og hreyfingar

-          að vinna skuli markvisst að umhverfismennt í öllu skólastarfi

-          að horft skuli til sérstöðu sveitarfélagsins í tengslum við útinám og umhverfismennt

-          að útbúa skuli aðstöðu til útináms og kennslu




Til baka