
Landhönnun í útrás! Landhönnun slf gerði á síðasta ári verktakasamning við norsku teiknistofuna Tegn 3 AS um hönnunarvinnu og verkefnastjórnun fyrir stofuna. Tegn 3 hét áður Selberg arkitekter AS og er ein af stærri teiknistofum í Noregi, með starfstöðvar í Oslo, Þrándheimi og Bergen, auk stöðvar í Málmey í Svíþjóð. Lesa meira... |
Dalskóli vígður ![]() Á dögunum fór fram vígsla á Dalskóla, nýjum leik- og grunnskóla í Úlafarsárdal í Reykjavík. Mannvirkið er afrakstur hönnunarsamkeppni sem Landhönnun tók þátt í ásamt Arkþing. Skólinn var upphaflega hannaður sem leikskóli, en í ljósi aðstæðna var ákveðið að skólinn skyldi hýsa leikskóla ásamt fyrstu þrem árgangum grunnskóla. Lesa meira... |
Vor í lofti Eftir páska fara margir að huga lóðinni og framkvæmdum utandyra. Á síðsta ári bauð Landhönnun viðskiptavinum sínum upp á nýstárlega og ódýrari þjónustu varðandi hönnun lóðar og undirbúningi lóðarframkvæmda. Tilgangurinn var að koma til móts við þá lóðarhafa sem hyggjast standa sjálfir að framkvæmdum en vilja hafa grófmótað plan eða riss til að styðjast við. Þessi þjónusta mæltist vel fyrir og margir sem nýttu sér þennan nýja valkost. Lesa meira... |
Þegar haustlaufin falla... ![]() ...þá er tímabært að greina frá gangi mála í nokkrum verkefnum sem eru til vinnslu hjá Landhönnun þessi misserin! Lesa meira... |
Nokkrir flottir einkagarðar ![]() Sumarið er gjarnan tími einkagarðanna og í ár voru nokkrir flottir í vinnslu hjá stofunni. Hér á verkefnavef stofunnar má sjá dæmi um nokkra: Brattholt, Sigtún 36, Birkihólar 5, Byggðarhorn 3. |
Landhönnun og Arkþing í 3-4. sæti 16. júní s.l. voru kunngerð úrslit í opinni hugmyndasamkeppni um menningarhús og kirkju í Mosfellsbæ. Tillaga Arkþings og Landhönnunar lenti þar í 3-4 sæti. Alls bárust 32 tillögur. Á heimasíðu Arkþings má sjá myndir af tillögunni. |
Nýjar myndir af nokkrum verkefnum Lesa meira... |
Forval í Færeyjum Hönnunarteymi á vegum Arkís, sem Landhönnun er hluti af, hefur verið valið áfram í forvali vegna hönnunar menntaskóla í Færeyjum. Alls sóttu 28 hópar um, en 5 voru valdir áfram. |
Samkeppni um skipulag miðbæjar Hveragerðis – Arkís og Landhönnun í 2. Sæti Sunnudaginn 1. Febrúar voru kunngerð úrslit í opinni hönnunarsamkeppni um miðbæjarsvæði Hveragerðis. Þáttaka í keppninni var mjög góð en alls voru 17 tillögur teknar til mats og umfjöllunar. Landhönnun vann að tillögu með arkitektastofunni Arkís og hafnaði hún í öðru sæti keppninnar. Það var svo tillaga ASK-arkitekta sem hlaut fyrsta sætið. Hér á verkefnavef stofunnar má sjá tillögu Arkis og Landhönnunar. |
Ný þjónusta við hönnun einkagarða Landhönnun óskar gleðilegs árs og þakkar samstarf og samvinnu á liðnu ári. Teiknistofan býður á nýju ári einstaklingum upp á útvíkkaða þjónustu varðandi skipulag einkagarða. Lesa meira... |
Guðríðarkirkja vígð Sunnudaginn 7. desember sl. var Guðríðarkirkja í Grafarholti vígð af biskupi íslands, Karli Sigurbjörnssyni, að viðstöddum hátt í 500 manns. Hér er að finna umfjöllun og myndir af kirkjunni sem hönnuð var af Arkþing arkitektum og byggð af SS verktökum. |
Formleg opnun leikskólans Jötunheima Á dögunum var formlega tekinn í notkun nýr leikskóli á Selfossi sem hlotið hefur nafnið Jötunheimar. Um er að ræða 6 deilda leikskóla staðsettan við Norðurhóla í Suðurbyggð á Selfossi. Lesa meira... |
Formleg opnun Hraunvallaskóla Föstudaginn 3 oktober verður/var Hraunvallaskóli í Hafnarfirði tekinn formlega í notkun. Hraunvallaskóli er stórt og glæsilegt skólamannvirki með innibyggðum leikskóla og íþróttasal. Lesa meira... |
Heiðaskóli í Hvalfjarðarsveit Landhönnun í samvinnu við Stúdio Strik og VSB urðu hlutskörpust í sérstöku forvali eða útboði vegna hönnunar nýs grunnskóli í Hvalfjarðarsveit. Óskað var eftir áhugasömum hönnunarteymum sem áttu að leggja fram tillögu að hugmyndafræðilegri nálgun verkefnisins. Lesa meira... |
Jódís leggst í víking! Jódís Gísladóttir sem starfað hefur með hléum á stofunni frá 2005 er farin til náms í byggingafræði í Danmörku. Jódísi eru þökkuð vel unnin störf og jafnframt óskað velfarnaðar í námi, leik og starfi. |
Ný byggð fyrirhuguð við Kotströnd Landhönnun handsalaði á dögunum samning við nýja landeigendur Kotstrandar í Ölfusi um yfirumsjón með hönnun nýrrar íbúðabyggðar á landinu. Verkefnið er umfangsmikið og verður unnið í nánu samráði við sveitarfélagið, en það hefur litið jákvæðum augum hugmyndir um nýja íbúðabyggð, miðja vegu milli Selfoss og Hveragerði. Lesa meira... |
Nýr grunnskóli við Úlfarsbraut Landhönnun hefur verið falin lóðarhönnun við nýjan grunnskóla í Úlfarsárdal. Arkitektar skólans eru Arkís en í hönnunarforsögn Reykjavíkurborgar er m.a. lögð áhersla á vistvæna hönnun og góða aðlögun lóðar að nærliggjandi umhverfi en skólalóðin liggur niður að botni Úlfarsárdals. Lesa meira... |
Nýbygging BUGL tekin í notkun Á dögunum opnuðu forseti íslands og heilbrigðisráðherra nýja og glæsilega álmu BUGL við Dalbraut 12. Arkitekt hússins voru Arkís og Landhönnun sá um lóðina. Verkið er allt hið fínasta með huggulegri aðkomu og skjólgóðu dvalarsvæði á lóð. Byggingin tengist núverandi húsnæði BUGL með glerbrú með tjörn undir. Myndir af verkinu og frekari umfjöllun er að finna hér. |
Íþróttamiðstöð í Þorlákshöfn vígð á landsmóti ![]() Ný íþróttamiðstöð ölfusinga í Þorlákshöfn var tekin í notkun við upphaf landsmóts UMFÍ um verslunarmannahelgina í sumar. Um er að ræða glæsileg íþróttamannvirki með nýrri sundlaugarbyggingu ásamt fullkomnum frjálsíþrótta- og fótboltaleikvangi. Allt umhverfi, aðkomusvæði og sundlugarlóðin voru endurbyggð og er allt hið glæsilegasta. Lesa meira... |
Kjörís hlýtur viðurkenningu Umhverfisnefnd Hveragerðisbæjar veitti í sumar Kjörís viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð og umhverfi. Í fyrrasumar fóru fram endurbætur á lóðinni skv. teikningu Landhönnunar þar sem komið var fyrir litlu aðkomutorgi með fallegri lýsingu, náttúrugrjóti og gróðri. Lesa meira... |
Lóð og umhverfi Matvælastofnunar verðlaunuð Umhverfisnefnd Árborgar veitti á dögunum Matvælastofnun viðurkenningu fyrir "góðan frágang á lóð og umhverfi". Það er ánægjulegt að eftir því sé tekið þegar lóðarhafa, í þessu tilviki Merkiland ehf sem er eigandi fasteignarinnar, leggja metnað í frágang lóðar og umhverfis. Lesa meira... |
Íbúðabyggð í landi Laugardæla Nú er unnið að breytingum að nýlegu skipulagi byggðar á svæði við bakka ölfusár í landi Laugardæla neðan við fyrirhugaðan þjóðveg. Landhönnun hefur verið falið að úrfæra skipulagsskilmála sem stuðla eiga að grænu og vistlegu umhverfi íbúðasvæðis á þessum einstaka stað við árbakkann. Lesa meira... |
Landhönnun og Arkþing hlutskörpust í hönnunarsamkeppni ![]() Tillaga Arkþings og Landhönnunar var valin til endanlegrar útfærslu og framkvæmdar úr hópi fimm samanburðartillagna fyrir leikskóla í Úlfarsárdal í Reykjavík. Samkeppni þessi telst í dag óvenjuleg að því leyti að horfið var frá alútboðsforminu, sem hefur mikið verið notað á undanförnum misserum, og þess í stað óskað eftir tillögum hönnuða að nýstárlegum leikskóla sem félli best að óskum verkkaupa og aðstæðum á lóð. Lesa meira... |
Breytingar í landi Bitru? ![]() Að undanförnu hefur Landhönnun í samráði við landeigendur unnið að nýju skipulagi að fjölbreyttri landnotkun á jörðinni Bitru í Flóahrepp, skammt austan við Selfoss. Í þeim drögum sem nú eru kynntar er gert ráð fyrir samþættingu golfvallar og frístundahúsabyggðar á þremur aðskildum reitum. Lesa meira... |
Landhönnun slf. 5 ára – ný heimasíða! Í tilefni af því að 5 ár eru í dag síðan teiknistofan hóf formlega starfsemi er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur að skoða nýja heimasíðu sem verið hefur í undirbúningi að undanförnu og sem hér með er sleppt á vef allrar veraldar! Lesa meira... |
Sambýli fatlaðra á Egilsstöðum Landhönnun hefur verið falið að hanna lóð við nýtt sambýli með íbúðum fyrir fatlaða. Íbúðirnar eru hannaðar með fjölbreyttar þarfir fatlaðra í huga og markmiðið er að lóðin geti nýst íbúum, gestum og starfsfólki til leikjar, upplifunar, örfandi skynjunar og dvalar. |
Nýr leikvangur og íþróttamiðstöð í Þorlákshöfn Landhönnun var nýlega falið að að hanna lóð og umhverfi nýrrar íþróttamiðstöðvar, sundlaugar og íþróttaleikvangs í Þorlákshöfn. Verkefnið er hluti af undirbúningi sveitarfélagsins fyrir unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður í Þorlákshöfn næsta sumar, 2008. Það eru Arkís arkitektar sem hanna nýja sundlaugarbyggingu. Stjórn verkefnissins er í höndum VST á Selfossi. |
Jenný Magnúsdóttir hefur störf hjá Landhönnun Jenný lauk nýlega námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum. Jenný á að baki fjölbreytta starfsreynslu innan ferðamennsku en einnig hefur hún um nokkurt skeið unnið við virkjunarframkvæmdir á Kárahnjúkum! Við bjóðum Jennýu velkomna til starfa. |
Valdimar Harðarson hefur störf hjá Landhönnun Valdimar hefur nýlokið námi í landslagsarkitektúr frá Noregi. Valdimar var í fyrsta hópnum sem lauk þriggja ára námi á umhverfisskipulagsbraut Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, hvaðan hann fór síðan til Noregs og lauk þar mastersprófi frá Ási. Í lokaverkefni sínu á Hvanneyri fjallaði Valdimar um nýtingu vita og umhverfi þeirra við strendur Íslands sem hluta af útivistarsvæðum. |
Námsmannaíbúðir í miðborg Reykjavíkur Landhönnun hefur verið falin að hanna lóð og umhverfi fyrirhugaðs íbúðareits Byggingarfélags námsmanna á milli Einholts og Þverholts í Reykjavík. Verefnið er yfirgripsmikið og metnaðarfullt og verður því áfangaskipt og tekur til nokkura ára. Áætlað er að þar geti verið allt að 500 íbúðir. Lesa meira... |
Nýbygging við BUGL Landhönnun hefur verið falið að hanna lóð nýbyggingar við BUGL í Reykjavík. Verkið er unnið í samstarfi við Arkís arkitekta en áætlað er að húsið verði tekið í notkun árið 2008. |
Frístundahúsasvæði í landi Dalbæjar Landhönnun hefur verið falið að skipuleggja nýtt frístundahúsavæði á svæði undir Galtafelli í landi Dalbæjar. Svæðið liggur skammt frá Flúðum en þar er gert ráð fyrir 20-30 frístundahúsalóðum. |
Landbúnaðarstofnun á Selfossi Landhönnun hefur verið falið að fullhanna lóð við húsnæði MS við Austurveg 64, sem að stærstum hluta mun hýsa nýja Landbúnaðarstofnun. Verkið er unnið í samstarfi við ERUM arkitekta. |
Stúdentaíbúðir við Bjarkavelli í Hafnarfirði Landhönnun hefur verið falið að hanna lóð og umhverfi fjölbýlishúsaþyrpingu sem Byggingafélag námsmanna stendur að við Bjarkavelli í Hafnarfirði. Um er að ræða þyrpingu 6 húsa með um 150 íbúðum. Verktaki er Þórtak en verkið er unnið í umsjá Arkís en aðrir meðhönnuðir eru verkfræðistofan Víðsjá og Raflagnateiknistofan. |
Nýr Korpuskóli vígður Opnun og vígsla nýs Korpuskóla fór fram nýverið. Það var borgarstjóri Steinun Valdís Óskarsdóttir sem formlega vígði skólann. Lóðarframkvæmdum er þó ekki að fullu lokið en gróðursetningum var frestað fram á vorið. |
Frístundahúsasvæði í landi Leynis Landhönnun hefur verið falið að skipulegga frístundahúsasvæði í landi Leynis við Böðmóðsstaði í fyrrum Laugardalshreppi. Landið liggur að Brúará en fyrir eru eldri hús og lóðir í næsta nágreni. Gera má ráð fyrir 30-40 frístundahúsalóðum á svæðinu. |
Sveinn Rúnar Traustason hefur störf Svenni lauk námi frá Ási í Noregi árið 1998 og hefur aflað sér víðtækrar starfsreynslu á ýmsum sviðum fagsins bæði erlendis og hér heima, norðanlands sem sunnan. Við bjóðum Svenna velkominn til starfa. |
Jódís Ásta Gísladóttir hefur störf Jódís hefur nýlega lokið námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum auk þess að hafa tekið grunnáfanga í iðnhönnun. Jódís er fyrsti starfsmaður stofunnar og er hún boðin velkomin til starfa. |
Hraunvallaskóli í Hafnarfirði Landhönnun hefur verið falið að hanna lóð og umhverfi nýs sambyggðs grunnskóla og leikskóla í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Nokkrum teiknistofum var boðið að bjóða í hönnunarþátt verksins og átti Landhönnun lægsta boðið og var valin. Arkitektar skólanns eru Á stofunni arkitektar. |
Ný íbúðasvæði á Flúðum Landhönnun hefur verið falið að gera tillögur að nýjum íbúðahúsasvæðum við Högnastíg á Flúðum í Hrunamannahrepp. Verkið er unnið fyrir sveitarfélagið en vaxandi aðsókn er í íbúðalóðir á svæðinu. |
Vígsla Stekkjaráss í Hafnarfirði Formleg afhending og vígsla nýja 8 deilda leikskólans við Stekkjarás í Hafnarfirði fór fram nýlega, en áður höfðu verið teknar í notkun fjórar deildir. Verkefni þetta var afsprengi fyrstu alútboðssamkeppni sem Landhönnun tók þátt í og sem var framkvæmd. |