Um teiknistofuna
Teiknistofan Landhönnun slf var stofnuð 4. febrúar 2003.  Stofan hefur frá stofnun verið til húsa að Austurvegi 42 í nýlegu og rúmgóðu skrifstofuhúsnæði.  Þar eru einnig til húsa Verkfræðistofa Guðjóns Sigfússonar ásamt fleiri teiknistofum. Stofan hefur aðgang að fullkomnum tækjakosti til skipulagsgerðar og útprentunar auk fundaraðstöðu.

Eigandi og stofnandi Landhönnunar slf er Hermann Ólafssson, landslagsarkitekt FÍLA.

Síðustu ár hafa lengst af starfað tveir landslagsarkitektar og einn tækniteiknari. 

Stofan hefur allt frá stofnun sinnt fjölbreyttum verkefnum, bæði á sviði hönnunar og skipulags. Á sviði hönnunar er um að ræða hönnun á t.d. skóla- og leikskólalóðum, fjölbýlishúsalóðum, stofnannalóðum, útivistarsvæðum, áningastöðum, torgum og götum. Á sviði hönnunar er um að ræða deiliskipulag íbúðasvæða, iðnaðarsvæða og frístundahúsasvæða ásamt aðalskipulagsbreytingum. 

Landhönnun hefur ætíð átt gott og farsælt samstarf við margar af þekktustu arkitektastofum landsins um hönnun lóða við byggingar þeirra svo og við mótun stærri verkefna. Þar má m.a. nefna teiknistofurnar Arkís, Ask-arkitektar, Á stofunni, Arkþing, Gláma-kím og Arkitektastofan OG.

Eigandi Landhönnunar Hermann Ólafsson hefur frá 23. Júní 2003 löggildingu umhverfisráðherra til að gera séruppdrætti á sviði landslagshönnunar og gerð skipulagsuppdrátta með tilheyrandi skildutryggingu. Jafnframt leyfi iðnaðarráðherra frá 23. nóvember til að nota starfsheitið Landslagsarkitekt. Hermann er meðlimur í Félagi íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) og starfsmenn stofunnar vinna samkvæmt siðareglum félagsins.

Starfsfólk árið 2008
Hermann Ólafsson, landslagsarkitekt FÍLA, framkvæmdastjóri
Kamila Figlarska, landslagsarkitekt
Jódís Gísladóttir, tækniteiknari FÍT

Almennar upplýsingar
Heiti í fyrirtækjaskrá: Landhönnun slf
Aðsetur: Austuvegur 42, 800 Selfoss
Kennitala: 440203 3960
Stofndagur: 4. febrúar 2003 
Símanúmer: 482 3300
Faxnúmer: 482 3322
Heimasíða: www.landhonnun.is
Netfang: landhonnun@landhonnun.is
Vsk. númer: 78047