
Teiknistofan Landhönnun slf var stofnuð 4. febrúar 2003. Stofan hefur frá stofnun verið til húsa að Austurvegi 42 í nýlegu og rúmgóðu skrifstofuhúsnæði. Þar eru einnig til húsa Verkfræðistofa Guðjóns Sigfússonar ásamt fleiri teiknistofum. Stofan hefur aðgang að fullkomnum tækjakosti til skipulagsgerðar og útprentunar auk fundaraðstöðu.