Lóð og umhverfi Matvælastofnunar verðlaunuð


Umhverfisnefnd Árborgar veitti á dögunum Matvælastofnun viðurkenningu fyrir "góðan frágang á lóð og umhverfi". Það er ánægjulegt að eftir því sé tekið þegar lóðarhafa, í þessu tilviki Merkiland ehf sem er eigandi fasteignarinnar, leggja metnað í frágang lóðar og umhverfis.

Landhönnun hannaði lóð stofnunarinnar í samvinnu við arkitekta hússin, Erum arkitekta. Vinna við frágang lóðar var í umsjá Ræktunarsambands Flóa og Skeiða.




Til baka