
![]() |
|||
|
|
|||
Stofunni er skipt upp í nokkur svið eða „grupper“, þ.e. arkitektúr, landslagsarkitektúr og skipulag (plan) og samtals vinna þar um 80-90 manns. Stofan er að fullu í eigu verkfræði- og verktakafyrirtækisins Reinertsen AS, sem er eitt af stærri fyrirtækjum Noregs á sínu sviði.
Verkefni landslagsarkitekta hjá Tegn 3 eru afar fjölbreytt, frá smærri verkefnum í gegnum verktakasamninga við sveitarfélög til þáttöku í járbrauta- og vegahönnun. Landhönnun hefur þannig m.a. komið að samkeppnishönnun á fjölbrautakskólalóð, hönnun á grunnskóla- og leikskólalóðum, torgum og bæjarrýmum, fjölbýlishúsalóðum og hönnunar vegna stækkunar kirkjugarða. Þá hefur Landhönnun verið hluti af hönnunarteymi vegna vegna endurnýjunar á nokkrum járnbrautarstöðvum og nýlagningar vega og járnbrauta.