Eftir páska fara margir að huga lóðinni og framkvæmdum utandyra. Á síðsta ári bauð Landhönnun viðskiptavinum sínum upp á nýstárlega og ódýrari þjónustu varðandi hönnun lóðar og undirbúningi lóðarframkvæmda. Tilgangurinn var að koma til móts við þá lóðarhafa sem hyggjast standa sjálfir að framkvæmdum en vilja hafa grófmótað plan eða riss til að styðjast við. Þessi þjónusta mæltist vel fyrir og margir sem nýttu sér þennan nýja valkost.
Landhönnun mun í vor einnig bjóða eigendum einkagarða upp á samskonar þjónustu, samhliða hefðbundinni þjónustu við fullnaðarhönnun lóðar með vel ígrunduðum og málsettum teikningum, gróðurskipulagi og magntöluútreikningum.
Þróun einkagarðsins og þarfir eigenda hafa breyst talsvert á síðustu árum. Á tímum tveggja útivinnandi ásamt aukinni tómstundþáttöku vill fólk fyrst og fremst dvelja í og njóta garðsins en síður sinna viðhaldi. Margir eiga eða hafa aðgang að sumarbústað og fá e.t.v. þar notið nálægðar og umgangs við gróður og náttúru. Að sumu leyti hefur einkagarðurinn flutt upp í bústað! Þar er fólk farið að rækta matjurtir, er með góðar verandir, leiktæki, grasflöt, sumarblóm og heitan pott.
Engu að síður vilja flestir hafa snyrtilegt og snoturt í kringum sig. Notkun á möl og grjóti ásamt nýjum efnum í hellum og pallaefni hefur farið vaxandi. Jafnframt er það flestum sammerkt að vilja hafa gróðursælt á lóð sinni en á seinni árum hefur reynsla og kunnátta fólks um rétta notkun á gróðri orðið betri. Minna er um að trjám sem verða allt of stór sé plantað í stórum stíl í einkagörðum. Meðfylgjandi er mynd af nýlegri lóð í blómabænum Hveragerði en fleiri myndir má sjá á verkefnavef Landhönnunar, undir ”einkalóðir”.